Scotsman klakavélar
Kælitækni hefur flutt inn og þjónustað klakavélar nánast frá því að fyrirtækið var stofnað eða snemma á 7. áratuginum. Nær allar klakavélarnar er af gerðinni Scotsman, en þær þykja með þeim áreiðanlegri á markaðnum. Ávallt er til á lager gott úrval og afar gott bókhald er að finna yfir allar klakavélar sem Kælitækni hefur selt s.l. áratugi og því auðvelt að finna réttu varahlutina eða gera við bilanir. Stóran varahlutalager er að finna fyrir þessar vélar hjá fyrirtækinu.
Scotsman klakavélarnar eru þær allgengustu á íslandi og varla finnst sá veitingastaður sem ekki er með Scotsman klakavél. Yfir 3000 vélar eru í gangi um allt land.
Renndu við hjá okkur og skoðaðu úrvalið, það er alltaf heitt á könnunni.