Efaflex iðnaðarhurðir
Hurðir frá Efaflex eru þekktar fyrir framúrskarandi gæði.
Efaflex er rúmlega 30 ára gamalt þýskt fyrirtæki og er mjög framalega í hönnun og framleiðslu á m.a. hraðopnandi iðnaðarhurðum bæði innandyra og útihurðir.
Efaflex er einnig þekkt fyrir mjög góða þjónustu.
Hurðirnar hafa reynst gríðarlega vel við hinar ýmsu aðstæður og eru m.a. mjög veðurþolnar. Hægt er að fá margar mismunandi útfærslur af hurðum.
Nánari upplýsingar veita söluráðgjafar Kælitækni. Sendu inn fyrirspurn eða líttu við hjá okkur, það er alltaf heitt á könnunni.