Reynsla, þjónusta og fagleg ráðgjöf
Kælitækni kappkostar við að veita viðskiptavinum sínum faglega ráðgjöf við val á réttum búnaði og kerfum hverju sinni.
Hjá Kælitækni starfa menn sem hafa áratuga reynslu af kælingu og frystingu. Fyrirtækið á einnig gott samstarf við marga kæliverktaka er varðar uppsetningu og þjónustu á þeim búnaði, sem Kælitækni selur auk þess að vera tryggustu viðskiptavinir fyrirtækisins hvað varðar íhluti til kæli- og frystikerfa.