Kælitækni í sókn
Kælitækni var stofnað árið 1962 og er því rúmlega fimmtugt. Kælitækni var upphaflega rekið sem þjónustufyrirtæki á sviði kæli-og frystitækni eða þar til 1997 að núverandi eigendur endurskipulögðu reksturinn og hófu sókn á miklu breiðari grundvelli. Viðskiptavinir Kælitækni spanna í dag breiðan hóp sem eru í raun allir sem þurfa á kælingu eða frystingu að halda. Gildir þá einu hvort um er að ræða lausnir í hraðfrysti eða ískerfum fyrir sjávarútveginn og fiskverkunarfyrirtæki, hraðkæla fyrir matvælavinnslur, klakavélar, kæli og frystimublur fyrir hótel og veitingahús eða loftkælikerfi fyrir skrifstofur og tölvurými svo nokkuð sé nefnt. Þá hefur Kælitækni einnig hannað sérstök fiskþurrkunarkerfi fyrir fiskvinnslu með góðum árangri. Þess má einnig geta að Kælitækni hefur yfir 10 ára reynslu í krapakælingu og var meðal brautryðjenda í lausnum með krapa.
Neyðarnúmer 4401818
Opnunartími:
8 - 17 mánudag til fimmtudags
8 - 16 föstudag
Lokað um helgar
Kælitækni hefur einnig þjónustað kæliverktaka um árabil og er með öfluga heildsölu. Fyrirtækið vinnur náið með flestum kæliverktökum landsins og veitir þeim ráðgjöf og þjónustu á öllum þeim vörum og tækni sem Kælitækni selur. Vöruframboðið er stöðugt að aukast og kappkostar Kælitækni að eiga sem mest úrval af vörum og íhlutum fyrir kæliverktaka. Hjá Kælitækni í dag fást flestar þær vörur sem fagmenn í Kælibransanum þurfa á að halda. Því má segja að Kælitækni sé að verða ?Sérverslun Kæliverktakans?
Kælitkækni er með umboð frá mörgum heimsþekktum birgjum í kælingu og frystingu. Kælitækni er einnig í samstarfi við ýmsa af þessum birgjum er lítur að þróun og hönnun s.s. North Star, Finsam, Geneglace, Teknoterm, Bitzer, Mycom, og DSI.
Starfsmenn Kælitækni er öflug liðsheild með fjölbreytta reynslu og bakgrunn. Allflestir starfsmenn hafa starfað sem þjónustumenn við kæli-og frystikerfi og eru því öllum hnútum kunnugir.
Kælitækni klæðskerasnýður lausnir fyrir hvern og einn viðskiptavin og býr þannig til heildarlausnir úr vélum og kerfum frá mismunandi birgjum. Helstu verkefni Kælitækni undanfarinna ára eru margvísleg. Má þar nefna
hönnun og uppsetningu ísverksmiðja, frystibúnað og krapakerfi í togara sem og fiskvinnsla í landi, fiskþurrkunarkerfi og vatnskælikerfi fyrir fiskeldi, verslunarkæla í smærri og stærri verslanir og ýmsan búnað fyrir veitingahús.
Starfsemi Kælitækni hefur verið í stöðugum vexti og er markmiðið að halda áfram á þeirri braut.