Nergeco hraðopnandi hurð hjá Eimskip
Í sumar var sett upp ný hraðopnandi Nergeco útihurð fyrir vöruhótel Eimskips. Hurðin er engin smásmíði eða 6,2 metrar að hæð og 5,4 metrar að breidd. Opnunarhraði hurðarinnar er 1 m/sek og þolir hurðin vindhraða allt að 250 km/klst. Mikil umferð er inn og út úr húsinu og með Nergeco hurð sparar Eimskip miklar fjárhæðir í upphitunarkostnaði þar sem varmatap verður mun minn vegna hraða hurðarinnar. Þá verður einnig mun minna um ryk og óhreinindi inni í vöruhúsinu.
Nergeco
- Opnast hratt og örugglega
- Eru orkusparandi
- Þola mikið vindálag
- Eru öruggar og áreiðanlegar
- Henta við allar aðstæður
- 15 ára reynsla við íslenskar aðstæður
- Yfir 140 hurðir í notkun á íslandi